Mýflug | Sjúkraflug / Leiguflug / Útsýnisflug / Flugprófanir

Myflug Air | Air ambulance / Charter flights / Air sightseeing / Flight calibration

Velkomin á heimasíðu Mýflugs

Flugfélagið Mýflug á að baki meira en 25 ára reynslu í flugrekstri á Íslandi. Félagið sinnir sjúkraflugsþjónustu á svonefndu Norðursvæði samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið ásamt því að sinna margskonar flugverkefnum, innanlands sem utan.


Leiguflug eru í boði allt árið um kring eftir óskum viðskiptavina okkar, en útsýnisflugin eru nær eingöngu flogin að sumri til, út frá Mývatni og Akureyri. Einnig sinnum við flugprófunum á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum í samstarfi við Flugstoðir.



Sé óskað eftir tilboði í leigflug eða vakni einhverjar spurningar, vinsamlega
smellið HÉR eða á valgluggann 'Um okkur' vinstra megin á síðunni

Fréttir

Útsýnisflug

Þó að liðin sé rúm vika af septembermánuði, þá er sannkallað sumarveður þessa dagana á norðurlandi, með heiðríkju og hitastigi í kringum tuttugu gráðurnar. Það má því segja að það séu kjöraðstæður til útsýnisflugs með Mýflugi!
Veðurspáin fyrir komandi viku lofar góðu, og höfum við nægt framboð fyrir einstaklinga jafnt sem hópa.

Útsýnisflugið frá Mývatni verður starfrækt að minnska kosti fram í miðjan september, en það mun verða háð eftirspurn.
Ekki hika við að hafa samband sé óskað eftir flugi eða vakni einhverjar spurningar;

Sími: 464-4400
Tölvupóstur: myflug@myflug.is
Hafa samband um heimasíðu

Flug á Þjóðhátíð


Mýflug býður nú upp á flug milli Bakkaflugvallar og Vestmannaeyja fram yfir Verslunarmannahelgina!
Til að byrja með verður sérstakt kynningarverð, 5000 kr. á mann (fullorðinn) en 3000 kr. fyrir börn undir 12 ára (aðra leið).

Frá og með 28 júlí verður miðaverðið 7000 kr. á mann (fullorðinn) og 4000 kr. fyrir börn undir 12 ára (aðra leið).

Þessi þjónusta verður í boði til og með 3. ágúst.

Útsýnis og leiguflug

Horft yfir Dettifoss

Mývetningar segja gjarnan að sumarið hefjist ekki fyrr flugvélahljóð fara að berast eyrum þeirra. Útsýnisflugið þetta sumarið fer vel af stað, veðurspáin er góð fyrir næstu daga, og líkt og venjulega þá getum við flogið með einstaklinga jafnt sem stærri hópa. Fyrir þá sem hafa takmarkaðan tíma en vilja samt sjá sem mest þá er útsýnisflug með Mýflugi svarið!

Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf