Leiguflug

Leiguflug getur verið hagkvæmur kostur þegar koma þarf smærri jafnt sem stærri hópum á milli staða sem ekki eru þjónaðir af áætlunarflugi, eða utan

Leiguflug

Leiguflug getur verið hagkvæmur kostur þegar koma þarf smærri jafnt sem stærri hópum á milli staða sem ekki eru þjónaðir af áætlunarflugi, eða utan þjónustutíma þess.

Beechraft Kingair 200 vélar okkar hafa einstaklega góða flugeiginleika, hafa háan farflugshraða og eru búnar jafnþrýstibúnaði sem gerir þeim kleift að fljúga í sömu hæðum og flestar þotur, ásamt því að getað notast við stuttar flugbrautir sem víða eru á Grænlandi og Íslandi.

Einnig höfum við á að skipa Piper Chieftain og Cessna 206 fyrir leiguflug. Lesa meira
Mýflug hefur margra ára reynslu í að skipuleggja og framkvæma flug fyrir hópa jafnt sem einstaklinga, og getum við boðið upp á mikinn sveigjanleika þegar kemur að flugi, innanlands sem utan.

Á Íslandi eru fjórir flugvellir sem annast geta millilandaflug, Reykjavík, Keflavík, Akureyri og Egilsstaðir.

Með tengiflugi í gegnum Keflavík opnast mögulegir áfangastaðir víðsvegar í Evrópu og Norður Ameríku.

Dæmi um flugtíma í innanlandsflugi:

  • Reykjavík - Akureyri 0:40
  • Reykjavík - Egilsstaðir 0:55
  • Reykjavík - Höfn í Hornafirði 0:50
  • Reykjavík - Ísafjörður 0:35
  • Reykjavík - Mývatn 0:50
  • Reykjavík - Sauðárkrókur 0:40
  • Reykjavík - Vestmannaeyjar 0:20
  • Reykjavík - Vopnafjörður 0:55

Dæmi um flugtíma í millilandaflugi:

  • Reykjavík - Vágar / Færeyjar 1:45
  • Reykjavík - Kulusuk / Grænland 1:40
  • Reykjavík - Narsarsuaq / Grænland 2:40
  • Reykjavík - Sisimiut / Grænland 3:05
  • Reykjavík - Ilulissat / Grænland 3:00
  • Reykjavík - Constable Pynt / Grænland 1:35
  • Reykjavík - Sondrestrom / Grænland 2:50
  • Reykjavík - Nuuk / Grænland 3:00
  • Reykjavík - Kaupmannahöfn / Danmörk 4:15
  • Reykjavík - Bergen / Noregur 3:00
  • Reykjavík - Oslo / Noregur 3:40
  • Reykjavík - Stokkhólmur / Svíþjóð 4:00

Fyrir nánari upplýsingar og/eða verðtilboð vinsamlegast hafið samband:

Sími: 464-4400 Fax: 464-4401
Tölvupóstur: myflug@myflug.is / eða smellið HÉR

Mýflug
Mýflug hf.
660 Mývatn
Sími. 464-4400
Fax. 464-4341
myflug@myflug.is

Kíktu á
Facebook
Facebook