Önnur þjónusta

Eftirfarandi þjónusta er í boði hjá Mýflugi: (listinn er ekki tæmandi) Flugprófanir Flugprófanir eru framkvæmdar af sérútbúinni flugvél til prófunar á

Önnur þjónusta

Eftirfarandi þjónusta er í boði hjá Mýflugi:

(listinn er ekki tæmandi)

Flugprófanir

Flugprófanir eru framkvæmdar af sérútbúinni flugvél til prófunar á siglingatækjum og leiðsöguvitum á jörðu niðri. Meðal annars sér flugvélin um að prófa allar tegundir aðfluga, s.s. ILS, VOR, NDB og GPS aðflug ásamt því að flugprófa siglingavita sem öll almenn flugumferð styðst við.
Flugprófanirnar eru framkvæmdar í samstarfi við Flugstoðir og er þeim sinnt á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.


Flutningur á sjúklingum

Ásamt því að sinna sjúkraflugi innanlands bjóðum við einnig upp á flutning sjúklinga á milli landa. Séð er fyrir sérútbúinni flugvél með pláss fyrir allt að tvo sjúklinga á börum eða einn sjúkling á börum og hitakassa fyrir ungabörn. Hægt er að fljúga í beinu flugi á áfangastaði í norður Evrópu, Grænlandi og Færeyjum.
Sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði Akureyrar fylgja ætíð sjúklingum í flug, einnig er mögulegt að læknir fylgi sjúkling ef þörf krefur.


"Air drop"

"Air drop" er góð leið til að flytja mikilvæga hluti á óaðgengilega staði, svo sem varahluta til skipa á hafi úti. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband, við bregðumst skjótt og örugglega við!


Ljósmyndaflug

Mýflug hefur mikla reynslu af ljósmyndaflugi, með allt frá byrjendum til fagmenntaðra ljósmyndara.
Sem dæmi má nefna að við höfum flogið með ljósmyndara frá National Geographic, Microsoft ásamt myndatökufólki frá ýmsum sjónvarpsstöðum víða að, þar á meðal frá Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu og Japan.
Sé óskað eftir sem allra skýrustu myndum er hægt að taka myndir í gegnum opna hurð á minnstu flugvélagerð okkar sé þess óskað (gera þarf sérstakar ráðstafanir).


Ekki hika við að hafa samband fyrir nánari upplýsingar og/eða verðtilboð!


e-mail: myflug@myflug.is
sími: 464-4400
Hafa samband

Mýflug
Mýflug hf.
660 Mývatn
Sími. 464-4400
Fax. 464-4341
myflug@myflug.is

Kíktu á
Facebook
Facebook