Mýflug sinnir öllu sjúkraflugi innan Íslands samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið, og er samningstíminn frá 2006 til 2011.
Miðstöð sjúkraflugsins er á Akureyri, og er Slökkvilið
Akureyrar ásamt Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri samstarfsaðilar Mýflugs í því
verkefni. Einnig sinnum við flutningi sjúklinga á milli landa sé óskað eftir því.
Sé óskað eftir sjúkraflugi vinsamlegast hafið samband við 112
(Skriflegar sjúkraflugsbeiðnir má nálgast hér)

Á Akureyrarflugvelli er staðsett sérútbúin sjúkraflugvél af gerðinni Beechcraft Kingair 200 sem ávallt er reiðubúin til flugs, á öllum tímum sólarhringsins, allt árið um kring. Í áhöfn flugvélarinnar eru flugstjóri, flugmaður og sjúkraflutningamaður. Þegar þörf krefur fylgir einnig læknir frá FSA sjúklingum.
Um borð er pláss fyrir tvo sjúklinga á börum og allur nauðsynlegur búnaður til umönnunar þeirra alltaf til staðar. Sérstakar ráðstafanir eru gerðar þegar flogið er með þungaðar konur og börn.
Vakni einhverjar spurningar má hafa samband við:
Flugfélagið Mýflug: 464-4400.
Slökkvilið Akureyrar: 461-4200






