Beechcraft Kingair 200
Beechcraft Kingair 200 er ein vinsælasta flugvél allra tíma í sínum stærðarflokki, og hafa fleiri en 3400 eintök verið smíðuð af þeirri tegund. Flugvélin er útbúin tveimur skrúfuþotuhreyflum af gerðinni PT6A-42 og þrýstijöfnuðum klefa sem gerir henni kleift að fljúga í allt að 35.000 feta hæð (10.600 metra) sem eykur flugdrægni og bætir þægindi farþega.
Einnig getur flugvélin tekið á loft og lent á stuttum flugbrautum, sem gerir hana afar hentuga innan Íslands og Grænlands.
Tvær flugvélar af þessari gerð eru í notkun, ein þeirra sinnir leiguflugi ásamt mælingarflugi fyrir Flugstoði, en hin er sérútbúin sjúkraflugvél sem annast sjúkraflug innan Íslands. Sú flugvél er einnig tiltæk í tilfallandi verkefni sé þess óskað.

Hreyflar:
(2) P&W PT6A-42 – 850 hestöfl (hvor)
Farþegafjöldi:
A) – Leiguflug: Allt að 9
B) – Sjúkraflug: 4 í sætum og 2 sjúklingar á börum
Farflugshraði:
280 hnútar (518 km/klst)
Piper Chieftain (PA-31-350)
Piper Chieftain (PA-31-350) hefur fyrir löngu sannað gildi sitt við þær krefjandi aðstæður sem oft fylgja flugi á Íslandi. Þessi tegund hefur meðal annars sinnt; útsýnisflugi, leiguflugi, áætlunarflugi og sjúkraflugi innan Íslands og jafnvel til nágrannalandanna. Mýflug starfrækir einn Piper Chieftain sem er tiltækur í leiguflug sé þess óskað.
Hreyflar:
(2) Lycoming - 350 hestöfl (hvor)
Farþegafjöldi:
8
Farflugshraði:
170 hnútar (315 km/klst)
Cessna 206 Stationair
Cessna 206 er mjög fjölhæf flugvél og þjónar allskyns verkefnum fyrir Mýflug, svosem leiguflugi, útsýnisflugi, ljósmyndaflugi og flugi með fallhlífarstökkvara.
Mýflug starfrækir í dag tvær flugvélar af þessari gerð og sjá þær að mestu leyti um útsýnisflugið frá Mývatni á sumrin. Einnig eru þær tiltækar í leiguflug ef svo ber undir.
Hreyfill:
(1) Continental - 300 hestöfl
Farþegafjöldi:
5
Farflugshraði:
130 hnútar (240 km/klst)