3400 km í sjúkraflugi

Talsverðar annir hafa verið í sjúkraflugi Mýflugs undanfarna daga, og þá sér í lagi þessa viku sem nýhafin er.

3400 km í sjúkraflugi

Sjúkraflugvél Mýflugs á Reykjavíkurflugvelli
Sjúkraflugvél Mýflugs á Reykjavíkurflugvelli

Frá aðfaranótt sunnudags til aðfaranótt þriðjudags bárust Mýflugi átta sjúkraflugsbeiðnir, þar af bárust fjórar í gær, og höfðu því flugmenn Mýflugs ásamt sjúkraflutningamanni Slökkviliðs Akureyrar í nógu að snúast. Fyrst var heimferð með sjúkling frá Reykjavík til Akureyrar, áður en haldið var til Vestmannaeyja og flogið með sjúkling þaðan sem þurfti að komast undir læknishendur í Reykjavík.

Einnig var höfð viðkoma á Egilsstöðum og á Höfn í Hornafirði þaðan sem sjúklingar voru fluttir til Reykjavíkurflugvallar. Eftir áhafnarskipti á  Akureyri barst aftur beiðni um að flytja veikan einstakling frá Egilsstöðum til Reykjavíkur.

Voru tilfellin af ýmsum toga, allt frá einstaklingi slösuðum eftir fjórhjólaslys til heimflutnings eftir aðgerð.

Vel gekk að sinna öllum beiðnum, ef frá er talið að ekki reyndist unnt að lenda á Norðfirði sökum óhagstæðrar vindáttar, en var sjúklingurinn þá fluttur með sjúkrabíl til Egilsstaða á móts við sjúkraflugvélina.

Á meðan flutningum undanfarins sólarhring stóð lagði flugvélin að baki meira en 3400 km, sem jafngildir nærri 14 ferðum á milli Reykjavíkur Akureyrar, og var samtals á lofti í 9 klukkustundir.


Mýflug
Mýflug hf.
660 Mývatn
Sími. 464-4400
Fax. 464-4341
myflug@myflug.is

Kíktu á
Facebook
Facebook