Sjúklingur af skemmtiferðarskipi fluttur til Reykjavíkur

Myflug Air | Air ambulance / Charter flights / Air sightseeing / Flight calibration

Sjúklingur af skemmtiferðarskipi fluttur til Reykjavíkur

Þyrlan lenti kl.00:35
Þyrlan lenti kl.00:35

Á miðnætti barst Mýflugi beiðni um að taka við sjúklingi úr þyrlu Landhelgisgæslunnar og flytja hann til Reykjavíkur. Hafði viðkomandi fengið hjartaáfall um borð í skemmtiferðarskipi sem var statt skammt undan Langanesi þegar óskað var eftir aðstoð. Var skipið á leið frá Seyðisfirði til Akureyrar.

Lenti þyrlan á Akureyrarflugvelli kl.00:35 þar sem sjúkraflugvél beið ferðbúin. Eftir að lokið var við að færa sjúklinginn á milli voru hreyflar gangsettir og flugtak framkvæmt kl.00:55. Lent var á Reykjavíkurflugvelli kl.01:39 og gekk ferðin að óskum.


Mýflug
Mýflug hf.
660 Mývatn
Sími. 464-4400
Fax. 464-4341
myflug@myflug.is

Kíktu á
Facebook
Facebook