Í gærmorgun barst Mýflugi beiðni um að flytja tvo sjúklinga frá Kulusuk til Reykjavíkur, þar af stúlku á unglingsaldri. Var um hryggbrot að ræða eftir óhapp á hraðbáti og þótti ástæða til koma viðkomandi sem fyrst undir læknishendur þar sem hætta var talin á varanlegri lömun. Sökum óhagstæðs veðurs í Kulusuk var ekki unnt að leggja af stað fyrr en eftir hádegið. Var ferðin nýtt til að flytja sjúkling frá Akureyri til Reykjavíkur áður en haldið var til Grænlands. Lenti flugvélin aftur á Reykjavíkurflugvelli kl.17:20 eftir rúmlega eins og hálfs tíma flug frá Kulusuk, og gekk flutningurinn að óskum.
Á meðan Grænlandsförinni stóð bárust tvö önnur útköll sem sinnt voru af varaflugvél sem er í eigu flugfélagsins Norlandair. Voru tveir sjúklingar fluttir loftleiðina til Reykjavíkur, annar frá Egilsstöðum en hinn frá Vestamannaeyjum.
Í dag hafa borist 4 sjúkraflugsútköll, sem gera samtals 8 útköll á 2 sólarhringum. Hefur þeim verið sinnt af þremur flugáhöfnum á tveimur flugvélum og því má segja að það séu talsverðar annir í sjúkrafluginu þessa dagana. Frá mánaðarmótum er heildarfjöldi útkalla orðinn 33.

