Sjúkraflug til Chambery í Frakklandi

Sjúkraflug til Chambery í Frakklandi

Sjúkraflug til Chambery í Frakklandi

Fyrir brottför frá Egilsstöðum
Fyrir brottför frá Egilsstöðum

Síðastliðinn sunnudag hélt sjúkraflugvél frá Mýflugi í eitt lengsta sjúkraflug sem farið hefur verið frá Akureyri. Fyrsti hluti ferðarinnar var til Egilsstaða þar sem fyllt var á eldsneytistanka vélarinnar, áður en flogið var í einum rykk til Chambery í Frakklandi, borgar sem er staðsett í suð-austurhluta landsins, skammt frá svissnesku Ölpunum.

Var ferðin farin í þeim tilgangi að flytja heim íslenskan ferðamann sem slasast hafði á skíðum, og var ástand sjúklingsins metið svo að ekki væri unnt að flytja hann með hefðbundu áætlunarflugi. Var því sérútbúin sjúkraflugvél kölluð til.

Á heimleiðinni var millilent á Wick í norðurhluta Skotlands til eldsneytisáfyllingar. Sterkir mótvindar á bakaleiðinni gerðu það að verkum að flugið til Íslands dróst lengur en ráðgert hafði verið, en lent var á Akureyri kl.22:30 um kvöldið.

Sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði Akureyrar fylgdi vélinni frá Íslandi, og annaðist sjúklinginn á heimferðinni.


Mýflug
Mýflug hf.
660 Mývatn
Sími. 464-4400
Fax. 464-4341
myflug@myflug.is

Kíktu á
Facebook
Facebook