Saga Mýflugs

Flugfélagið Mýflug hf. var stofnað þann 7. apríl 1985 með það að markmiði að bjóða upp á útsýnis-, leiguflug og flugkennslu út frá Reykjahlíð við Mývatn,

Saga Mýflugs

Flugfélagið Mýflug hf. var stofnað þann 7. apríl 1985 með það að markmiði að bjóða upp á útsýnis-, leiguflug og flugkennslu út frá Reykjahlíð við Mývatn, og var þetta nýja flugfélag nefnt Mýflug.


Eftir því sem starfsemin færðist í aukana var ákveðið að reisa flugskýli og farþegaafgreiðslu á Reykjavhlíðarflugvelli, sem komust í gagnið árið 1987.
Ýmsar flugvélategundir voru starfræktar fyrstu árin og má þar meðal annars nefna: Cessna 152, Cessna 172, Cessna 206 og Piper PA-23 Apache. Það sem þessar tegundir áttu sameiginlegt var mjög takmarkað sætaframboð en það breyttist árið 1990 þegar keypt var 10 sæta Piper Chieftain flugvél sem jók þjónustuframboðið til muna, og var meðal annars hafið áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Mývatns á þeirri flugvél.

Árið 1997 hóf félagið einnig áætlunarflug á milli Mývatns og Hafnar í Hornafirði, en sú þjónusta var aflögð tveimur árum síðar ásamt áætlunarfluginu á milli Reykjavíkur og Mývatns. Þess í stað var hafið áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Húsavíkur með nítján sæta Dornier 228 skrúfuþotu sem leigð var af Íslandsflugi.

Vonbrigði urðu með sætanýtinguna á flugleiðinni og var þjónustan að lokum felld niður 18 mánuðum síðar. Í kjölfarið tók rekstur Mýflugs miklum breytingum og beindist reksturinn fyrst og fremst að ferðaþjónustu. Áhersla var lögð á útsýnisflug frá Mývatni ásamt leigu- og sjúkraflugi.

Frá 1. janúar 2006 hefur Mýflugi verið falið að sinna sjúkraflugsþjónustu á norðursvæði landsins til ársins 2011 með möguleika á tveggja ára framlengingu. Svæðið sem Mýflug þjónar er í raun allt landið, utan suð-vesturhornsins.



Flugvél af tegundinni Beechcraft Kingair 200 var keypt og innréttuð sem sérhæfð sjúkraflugvél með nauðsynlegan aðbúnað til umönnunnar sjúklinga, þar á meðal tvær sjúkrabörur. Hlaut hún skráninguna TF-MYX.
Árið 2008 færði Mýflug út kvíarnar þegar félagið samdi við Flugstoðir um daglegan rekstur flugvélar Flugstoða, sem er af sömu gerð og sjúkraflugvél félagsins. Upphaflega var samið til eins árs, en árið 2009 var samningurinn endurnýjaður til næstu þriggja ára. Samningur þessi gerði Mýflugi kleift að hafa á að skipa varaflugvél til sjúkraflugs, ásamt því að vera tiltæk í önnur verkefni, þ.á.m. leiguflug.
Vélin er staðsett á Reykjavíkurflugvelli og sinnir einnig flugprófunum á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.

Árið 2008 var einnig vígt nýtt flugskýli Mýflugs og Flugskóla Akureyrar á Akureyrarflugvelli. Ásamt því að hýsa flugvélar Mýflugs og Flugskólans eru einnig skrifstofur, kennslustofa og biðstofa til húsa á efri hæð byggingarinnar.

Í dag samanstendur floti okkar af fimm flugvélum og er fjöldi starfsmanna mestur á sumrin þegar 12-15 manns, þar af 13 flugmenn, starfa fyrir félagið.

Mýflug
Mýflug hf.
660 Mývatn
Sími. 464-4400
Fax. 464-4341
myflug@myflug.is

Kíktu á
Facebook
Facebook