Vinsælasta ferðin okkar!
Eftir flugtak liggur leiðin yfir Mývatn og þaðan suður yfir Ódáðahraun þangað til komið er að eldstöðinni Öskju á miðhálendi Íslands. Hæstu tindarnir þar teygja sig upp í 1510 metra hæð.
Flogið er yfir Öskjuvatn og gíginn Víti áður en stefnan er aftur sett til suðurs og flogið áleiðis yfir Dyngjujökul til Kverkfjalla. Áhugavert er að sjá jarðhitann sem þar býr mæta köldu landslagi Vatnajökuls!
Ef skyggni leyfir má sjá glitta í hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk, á sunnanverðum jöklinum.
Í bakaleiðinni er flogið framhjá Herðubreið áleiðis til Mývatns, yfir Hverfjall, Námafjall og Kröflu áður en lent er aftur á Reykjahlíðarflugvelli.
Mörg frábær ljósmyndatækifæri gefast á meðan flugi stendur.
| Flugleið |
Tími |
Verð (á einstakling) |
| Mývatn og nágrenni |
0:20 |
70 EUR |
| Askja og Herðubreið |
1:00 |
140 EUR |
| Askja og Kverkfjöll |
1:30 | 195 EUR |
| Dettifoss og Ásbyrgi |
1:00 | 140 EUR |
| Super Tour |
2:00 |
245 EUR |
| Grímsey |
2:00+ | 200 EUR |
Bókanir/Fyrirspurnir:
- myflug@myflug.is
- Hafa samband um heimasíðu
- Sími 464-4400

