Mývatn, Askja, Kverkfjöll, Herðubreið, Dettifoss, Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi!
Tilvalið ef þú vilt sjá sem mest af landinu!
Það er heilmikil upplifun að ferðast eins og fuglinn fljúgandi frá Mývatni suður að Vatnajökli, og þaðan alla leið að Ásbyrgi, skammt frá norðurströnd landsins. Nánar tiltekið liggur flugleiðin frá Mývatni, yfir Ódáðahraun, Öskju og þaðan til Kverkfjalla nyrst á Vatnajökli, en tilheyra Dyngjujökli.
Frá Kverkfjöllum er flogið framhjá Herðubreið áður en stefnan er sett á Dettifoss. Farið er nokkrum sinnum yfir Dettifoss og hann skoðaður frá ýmsum sjónarhornum áður en aftur er beygt til norðurs og flogið meðfram Jökulsárgljúfri þar til komið er að Ásbyrgi. Að lokum er Kröflusvæðið skoðað úr lofti áður en lent er aftur á Reykjahlíðarflugvelli.
Fjölmörg tækifæri til ljósmyndunar gefast á meðan flugi stendur.
Meðal staða sem skoðaðir eru úr lofti eru; Mývatn, Askja, Kverkfjöll (Dyngjujökull), Herðubreið, Dettifoss, Jökulsárgljúfur, Ásbyrgi og Kröflusvæðið.
| Flugleið |
Tími |
Verð (á einstakling) |
| Mývatn og nágrenni |
0:20 |
70 EUR |
| Askja og Herðubreið |
1:00 |
140 EUR |
| Askja og Kverkfjöll |
1:30 | 195 EUR |
| Dettifoss og Ásbyrgi |
1:00 | 140 EUR |
| Super Tour |
2:00 |
245 EUR |
| Grímsey |
2:00+ | 200 EUR |
Bókanir/Fyrirspurnir:
- myflug@myflug.is
- Hafa samband um heimasíðu
- Sími 464-4400

